Leita í fréttum mbl.is

Þarfnast alvarlega regluverks

Ég hef aldrei skilið hversvegna íslenskar bankaauglýsingar eru svona ótrúlega frábrugðnar erlendum bankaauglýsingum.  Þar á bæ snýst auglýsingum vanalega um einstaka afurð, en hér snýst hún um eitthvað allt annað.  Þegar ég var hjá Íslandsbanka á sínum tíma fékk ég það verkefni að framkvæma samanburðargreiningu á innlendum bankaafurðum fyrir einstaklingsmarkað.  Ok, hafði gert þetta þegar ég var í Bandaríkjunum og taldi því að þetta ætti að vera einfalt þar sem aðeins var um 3 banka að ræða.  Raunin varð allt önnur eins og eigendur Peningamarkaðsbréfa komust að.
 
Eftir að hafa þvælst um Gogga, Námuna, Hlutdeild og endalausan skóg heita og samsetninga varð lokaniðurstaðan Excel skjal sem ekki var hægt að vista á disklingi þar sem það var orðið of stórt!  Það þurfti að einfalda vöruflóruna en ég get ekki séð að því verkefni hafi miðað neitt sérlega vel áleiðis.
 
Ég geri því athugasemd við hvernig bankar hérlendis auglýsa sig.  Vil vísa á regluverk sem er til staðar í Bretlandi (British Bankers Association):
 
 
Og svo þetta fyrir þá sem töldu Peningamarkaðssjóði vera áhættulausa:
 

Sá myndbútur sem þessi bloggfærsla tengist við er brilljant!

mbl.is Bankamenn á flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Snorri Hrafn Guðmundsson
Snorri Hrafn Guðmundsson
MBA í markaðsfræðum og greiningum frá Suffolk University, Boston (1997).

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband