Föstudagur, 10. október 2008
Afleiðingar aðgerða í Landsbankanum
Ég hef mikið velt fyrir mér afleiðingum aðgerða í Landsbankanum. Skv. Vinnumálastofnun mælist atvinnuleysi fyrir júlí 2008 eftirfarandi:
- Konur: 1.216; 1,6%
- Karlar: 1.053; 1,0%
- Samtals: 2.269; 1,2%
Áætlað atvinnuþátttaka:
- Konur: 76.000
- Karlar: 105.300
- Samtals: 189.083
Sé uppsögnum Landsbankans, 550 manns, dreift jafnt á milli kynjanna má áætla atvinnuleysi í kjölfar þeirra aðgerða:
- Konur: 2,0% (+22,6%)
- Karlar: 1,3% (+26,1%)
- Samtals: 1,5% (+24,2%)
Gerist hliðstæðir atburðir í Kaupþingi og Glitni verða áhrifin þessi:
- Konur: 2,7% (+67,8%)
- Karlar: 1,8% (+78,3%)
- Samtals: 2,1% (+72,7%)
LAUNAMÁL
Tölur Hagstofunnar setja meðallaun í bankageiranum við 431 þúsund 31.12.2007. Vantar þar inn laun kvenna í hlutastarfi. Nú virðist sem laun hafi verið lækkuð í 300 þúsund og má þá áætla að áhrif uppsagna (gangi þetta yfir alla 3 bankana, 1.650 uppsagnir) á heildarneyslu hafi lækkað um 393 miljónir á mánuði. Til samanburðar má geta að rekstrargjöld Reykjavíkurborgar voru 53,6 miljarðar 2006. Nema áhrif launalækkunar og uppsagna 24,8% af þeirri upphæð.
ÁHRIF Á VERSLUN
Séu þessar tölur vigtaðar inn í einkaneyslu eru áhrifin lækkun um 21 miljarð. Geta smásöluaðilar því gert ráð fyrir að kvenfólk dragi neyslu saman um 32,7% (kr. 53,499) á mánuði en karlmenn um 44,3% (kr. 55.713).
Smásöluaðilar geta beitt þessari aðferð við að áætla veltubreytingu eins og staðan er í dag:
- Velta á vörum fyrir konur x (1 - 0,327)
- Velta á vörum fyrir karla x (1 - 0,443)
Séu þessar stærðir ekki þekktar:
- Velta á vörum x (1 - 0,377)
Þetta er afar gróf áætlun en á að verja þess aðila gegn birgðauppsöfnun. Það er raunar verulega erfitt að reikna þetta út með nákvæmni þar sem endalausir þættir spila saman, líkt og fjármagn sem læst er í peningabréfum og þak á greiðslukortanotkun. Forsendur eru auk þess bjagaðar þar sem ekki er unnt að fá upplýsingar sem stemma tímalega séð, en ég myndi gera ráð fyrir þessum veltusamdrætti a.m.k. á varningi sem ekki telst til brýnna nauðsynja. Birgjar og innflutningsaðilar geta beitt sama hlutfalli. Ég hvet smásöluaðila til þess að hafa álagningu í lágmarki eins og unnt er þar til við erum búin að venjast þessu breytta umhverfi.
Baugur: Engin áhrif á starfsemina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 14.10.2008 kl. 11:52 | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
Ég
Viðskipti
- IceStat Market Intelligence Ráðgjöf og greiningar
- Myndrænn gagnagrunnur Frítt gagnasafn
- facebook Fréttaveita
- Twitter Fréttatilkynningar
- WordPress Á ensku
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.