Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Krónan og langtímaáætlanir
Skoðum aðeins krónuna í ljósi raunverulegra dæma sem komið hafa upp.
Það loðir við Íslendinga að þeir geti ekki gert langtímaáætlanir. Raunin er að þeir geta það jafnvel og aðrir en ekki með krónuna. Eftirfarandi dæmi sýna fram á hversu mikinn óstöðugleika krónan veldur. Þau eru gróf og taka ekki mið af gengistryggingum o.fl. sem fyrirtæki geta nýtt sér (en eru dýrar vegna áhættu sem falin er í krónunni). Verðlagsþróun er heldur ekki tekin inn þar sem markmiðið er að einangra áhrif gjaldmiðla á innlent viðskiptaumhverfi. Gengiskrossar eru fengnir frá Seðlabanka Íslands.
DÆMI 1
Innlent fyrirtæki gerir fimm ára samning við tvo erlenda birgja varðandi sölu til innlenda aðila, og eru öll verð fest. Samningar taka gildi Apríl 2004 og eru eftirfarandi:
04.2004 | |
EBS birgir | EUR 10.000 |
BNA birgir | USD 5.000 |
Birgðir | ISK 1.168.678 |
Samningsverð | ISK 1.519.281 |
Hagnaður (S) | ISK 350.603 |
ISK: Framlegð (S) | 30,0% |
Birgjar skuldbinda sig að festa verð við EUR 10.000 og USD 5.000. Fyrirtækið skuldbindur sig á móti að selja innlendum viðskiptavini vöruna á föstu verði út samningstímann. Hann setur álagningu í 30%, sem skilar kr. 350.603 hagnaði. Skoðum stöðuna í lok samningstíma:
04.2009 | |
EBS birgir | EUR 10.000 |
BNA birgir | USD 5.000 |
Birgðir | ISK 2.069.130 |
Samningsverð | ISK 1.519.281 |
Hagnaður (S) | ISK -549.849 |
Framlegð (S) | -26,6% |
Fyrirtækið er komið í þrot takist ekki að endursemja. Skoðum myndræna framsetningu:
Rauða línan sýnir verðið sem hann fær. Sú bláa, birgðir, má ekki fara yfir hana. EIns og sést hrynur fyrirtækið þegar krónan gefur sig.
DÆMI 2
Innlendur smásöluaðili kaupir birgðir af sömu aðilum og gerir samning við tvo erlenda birgja varðandi að festa verð til fimm ára. Endursöluverð (hér kallað markaðsverð) tekur mið af gengisþróun. Auk hennar er 30% álagning lögð ofan á. Tekjur koma inn tímabilið eftir að útgjöld hafa átt sér stað. Skoðum stöðuna í lok samningstíma:
04.2009 | |
ESB birgir | EUR 10.000 |
BNA birgir | USD 5.000 |
Birgðir | ISK 2.069.130 |
Markaðsverð | ISK 2.463.890 |
Hagnaður (M) | ISK 394.760 |
Framlegð (M) | 19,1% |
Verðlag flýgur upp og arðsemin hegðar sér eins og jarðskjálftamælir. Það er ekki hægt að gera langtímasamninga vegna krónunnar þar sem aðrar myntir koma við sögu þar sem hún er allt of veik. Vegna þessa geta innlend fyrirtæki ekki gert langtímaáætlanir, sem gerir að verkum að það er ekki hægt að framkvæma langtíma stefnumótun.
Framlegðarsamanburður gefur tvennt til kynna:
Framlegð S: Stórhættulegt er að gera langtíma samning í krónum.
Framlegð M: Krónan hvetur til verðsveiflna og dregur þ.a.l. úr stöðugleika.
Skoðum þá hvernig staðan væri ef krónunni væri skipt út fyrir evru.
DÆMI 3
Sömu forsendur og í Dæmi 1 nema uppgjörsmynt fyrirtækis og viðskiptavina þess er EUR.
04.2004 | |
ESB birgir | EUR 10.000 |
BNA birgir | USD 5.000 |
Birgðir | EUR 14.172 |
Samningsverð | EUR 18.423 |
Hagnaður (S) | EUR 4.252 |
EUR: Framlegð (S) | 30,0% |
04.2009 | |
ESB birgir | EUR 10.000 |
BNA birgir | USD 5.000 |
Birgðir | EUR 13.764 |
Samningsverð | EUR 18.423 |
Hagnaður (S) | EUR 4.659 |
Framlegð (S) | 33,8% |
33,8% framlegð. Fyrirtækið er í fínu lagi á meðan það sem neglt var við krónuna fór á hvolf.
Bláa línan, kostnaður, fer aldrei yfir samningsverð. Hún er auk þess nánast bein lína.
DÆMI 4
Sömu forsendur og í Dæmi 2 nema uppgjörsmynt fyrirtækis og viðskiptavina þess er EUR.
04.2009 | |
ESB birgir | EUR 10.000 |
BNA birgir | USD 5.000 |
Birgðir | EUR 13.764 |
Markaðsverð | EUR 17.979 |
Hagnaður (M) | EUR 4.215 |
EUR: Framlegð (M) | 30,6% |
Afar litlar arðsemissveiflur og engar sem fyrirtækið gæti ekki tekið á sig. Evran útrýmir nauðsyn þess að gengistengja söluverð. Hagnaður lárétt lína sem segir að nú er hægt að fara í gerð langtímaáætlana.
Stöðug og svipuð framlegð sama hvor leiðin er farin. Gengishagnaður þegar evra styrkist gegn dal, en það er aukaatriði.
Framlegðarsamanburður
Blá og rauð lína: ISK
Græn og fjólublá: EUR
Svo, vilji fyrirtækin og almenningur stöðugleika þá er EUR betri kostur. Ef ekki, þá er um að gera að halda í krónuna.
Ítarlegri úttekt má finna hér (að vísu á ensku).
Engin viðskipti með krónu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:44 | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
Ég
Viðskipti
- IceStat Market Intelligence Ráðgjöf og greiningar
- Myndrænn gagnagrunnur Frítt gagnasafn
- facebook Fréttaveita
- Twitter Fréttatilkynningar
- WordPress Á ensku
Athugasemdir
En væri ekki hægt að ná sömu niðurstöðu með föstu gengi eins og t.d. Danir eru með? Hafa svipaða vexti og hjá Seðlabanka ESB og fast gengi. Slík gengi þyrfti sjálfsagt að vera talsvert lágt svo hægt væri að standa við það en það er tímabundið vandamál.
Héðinn Björnsson, 30.4.2009 kl. 15:20
Það ætti vel að vera hægt. Eina sem ég set út á það er að þá sveiflast gjaldmiðilinn í takt við ákvörðun seðlabanka sem við höfum engin áhrif á. Gæti komið í bakið á okkur.
Snorri Hrafn Guðmundsson, 1.5.2009 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.